[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 11.3.2010
EM: Hannes vann - Henrik gerði jafntefli 
Skák.is Hannes Hlífar Stefánsson (2574) vann austurríska alþjóðlega meistarann Martin Neubaer (2465) í sjöttu umferð EM einstaklinga, sem fram fór í Rijeka í Króatíu í dag. Henrik Danielsen gerði jafntefli við rússneska alþjóðlega meistarann Alexander… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Ólafur Stefánsson, Arnór Atlason og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika e.t.v. við Frakka í Egilshöll í apríl.

Ólafur Stefánsson, Arnór Atlason og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika e.t.v. við Frakka í Egilshöll í apríl. Kristinn Ingvarsson

Íþróttir | mbl.is | 9.2.2010 | 13:45

Mætir íslenska bronsliðið þreföldum meisturum í Egilshöll?

Til athugunnar  er að báðir vináttulandsleikir Íslendinga við heims., Evrópu,-og ólympíumeistara Frakka í handknattleik karla, sem fram fara hér á landi  16. og 17. apríl, verði háðir í Egilshöll. Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hefur óskað eftir tilboði frá sænsku fyrirtæki um leigu á sætum fyrir 7.000 áhorfendur og sérstöku keppnisgólfi fyrir handknattleik sem hægt væri að setja upp í Egilshöllinni vegna leikjanna.

Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, vonast til að svar berist frá Svíunum í vikunni og þá liggur fyrir hvort þessi framkvæmd borgar sig eða ekki. „Ef af verður þá kemur allur pakkinn frá Svíunum í nokkrum gámum. Það tekur síðan nokkra daga að setja þetta upp í Egilshöll," segir Einar. 

Einar segist ekki óttast að geta ekki selt 7.000 miða á aðra eins stórleiki og framundan eru við Frakka þar sem áhugi almennings fyrir íslenska handknattleikslandsliðinu er mikill. Á síðustu árum hafi færri en viljað komist að í Laugardalshöll þegar íslenska landsliðið hefur att þar kappi gegn stórþjóðum í undankeppni HM og EM.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars