Elías: Verð klár annað kvöld

Elías Már Halldórsson verður með Haukum á morgun gegn FH …
Elías Már Halldórsson verður með Haukum á morgun gegn FH á morgun. Meiðsli hans í leiknum í gærkvöldi virðast ekki alvarleg. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Þetta var bara létt tognun eftir allt. Ég verð klár á morgun,“ segir Elías Már Halldórsson, leikmaður Hauka sem meiddist á hásin um miðjan síðari hálfleik í viðureign Hauka og FH í undanúrslitum Olís-deildar karla í handknattleik í gærkvöldi.

Elías Már kom ekkert meira við sögu í leiknum og í fyrstu virtist sem meiðslin gætu verið alvarleg en hann fékk strax aðhlynningu hjá sjúkraþjálfara Hauka-liðsins. Elías Már staðfesti við mbl.is og hann verður með samherjum sínum þegar þeir sækja FH-inga heim í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum sem hefst í Kaplakrika klukkan 19.45.

Haukar eiga harma að hefna í leiknum á morgun eftir að hafa tapað með sjö mörkum í gærkvöldi, 32:25. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert