Aron og lærisveinar áfram

Aron Kristjánsson
Aron Kristjánsson Eva Björk Ægisdóttir

Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í danska meistaraliðinu KIF Kolding Köbenhavn tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í kvöld með stórsigri á B-deildarliðinu TM Tönder, 34:17.

KIF Kolding er ríkjandi bikarmeistari auk þess að vera Danmerkurmeistarar.

Ólafur Gústafsson skoraði ekki mark þegar Aalborg vann Odder á útvelli, 24:21, og vann sér einnig sæti í 8-liða úrslitum.

Guðmundur Árni Ólafsson og Róbert Aron Hostert voru hinsvegar í tapliði Mors-Thy gegn Ajax á útivelli, lokatölur, 23:21. Ekki liggur fyrir hvort þeir félagar hafi skorað mark eða mörk í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert