Spánarmeistarar Barcelona burstuðu Anaitasuna, 43:30, á útivelli í spænsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk, þar af 3 úr vítaköstum, fyrir Barcelona og hornamaðurinn Victor Tomás skoraði einnig 9 mörk. Börsungar voru með tveggja marka forystu eftir fyrri hálfleikinn, 21:19, en í síðari hálfleik keyrðu þeir hreinlega yfir heimamenn.