Arna með þrjú gegn toppliðinu

Arna Sif Pálsdóttir skoraði þrjú í gærkvöld.
Arna Sif Pálsdóttir skoraði þrjú í gærkvöld. mbl.is/Golli

Arna Sif Pálsdóttr, landsliðskona í handknattleik, skoraði þrjú mörk fyrir SK Aarhus þegar liðið gerði jafntefli við topplið Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi, 26:26. Leikið var í Árósum.

SK Aarhus situr í 9. sæti af 12 liðum deildarinnar með fjögur stig eftir fimm leiki en liðið er nýliði í deildinni.

Rut Arnfjörð Jónsdóttir var ekki með Randers þegar liðið tapaði óvænt fyrir Ringköbing, 21:20, á heimavelli. Rut hefur ekki jafnað sig að fullu eftir meiðsli sem hafa hrjáð hana í öxl allt þetta ár. Randers er í fimmta sæti deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert