Anna Úrsúla: Stærra en við áttum von á

„Þessi sigur var mikið stærri en við áttum von á. Þetta kom virkilega á óvart. En við erum bara sáttar að hafa byrjað leikinn af fullri hörku. Okkur fannst eiginlega aldrei nein mótspyrna í raun og veru,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eftir að Grótta burstaði Stjörnuna, 28:14 í 2. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í Mýrinni í Garðabæ í kvöld.

Anna Úrsúla átti góðan leik fyrir Gróttu og skoraði 6 mörk og var markahæst ásamt Evu Björk Davíðsdóttur. „Við ætlum bara í hvern leik og stefnum á að vinna þá flesta og vonandi bíður okkar titill við loka leiðarinnar,“ sagði Anna Úrsúla sem gekk í raðir Gróttu á ný í sumar frá Val þar sem hún lék síðustu ár.

Viðtalið við Önnu Úrsúlu má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert