Ari Magnús: Skrítið en gaman

Ari Magnús Þorgeirsson leikmaður Stjörnunnar þekkir hverja fjöl á gólfi íþróttahússins í Kaplakrika enda er hann uppalinn FH-ingur. Ari mætti sínum gömlu félögum í kvöld og hann átti fínan leik og var markahæstur sinna manna með 7 mörk.

„Þetta var svolítið skrítið en gaman. Það var hins vegar fúlt að tapa en við fengum á okkur allt of margar brottvísanir og FH-ingarnir skoruðu mörg mörk úr hraðaupphlaupum,“ sagði Ari Magnús við mbl.is en allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert