„Mér er mikið létt“

Guðmundur Þórður Guðmundsson.
Guðmundur Þórður Guðmundsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari Dana var ánægður með leik sinna manna gegn Litháum í kvöld en Danir unnu tíu marka sigur á heimavelli í viðureign þjóðanna í undankeppni EM.

„Mér er mikið létt eftir þennan sigur og sérstaklega af því að þetta var leikur í keppni og eitthvað í húfi. Til þessa höfum við bara spilað æfingaleiki,“ sagði Guðmundur en lærisveinar unnu leikinn, 31:21.

„Ég var ekki kvíðinn en ég var spenntur að sjá hvernig leikurinn færi og hann gekk vel fyrir sig,“ sagði Guðmundur en hans menn sækja Bosníumenn heim um helgina en sem kunnugt er voru það Bosníumenn sem slógu Íslendinga út í umspili um að komast á HM í Katar í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert