Sigurmark úr aukakasti (myndskeið)

Róbert Aron Hostert.
Róbert Aron Hostert. Ljósmynd/Siggfús G. Guðmundsson

Róbert Aron Hostert var hetja Mors/Thy þegar liðið hrósaði sigri á útivelli gegn Odder í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.

Róbert Aron skoraði sigurmarkið með skoti beint úr aukakasti framhjá varnarvegg Odder eftir lok venjulegs leiktíma. Þetta var eina mark Arons í leiknum.

Sjá sigurmark Róberts Arons

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert