Guðmundur Árni atkvæðamikill í sigurleik

Guðmundur Árni Ólafsson átti góðan leik í dag.
Guðmundur Árni Ólafsson átti góðan leik í dag. Ljósmynd/Bjerringbro-Silkeborg

Mors-Thy vann sterkan heimasigur í dag þegar Skjern kom í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik, en lokatölur urðu 27:23.

Guðmundur Árni Ólafsson skoraði fimm mörk fyrir Mors-Thy og var markahæstur í liðinu ásamt Rasmus Söby, en Róbert Aron Hostert var ekki með.

Liðið komst upp í níunda sætið með sigrinum og hefur átján stig eftir nítján leiki, en Skjern er í fimmta sæti með 22 stig. Lærisveinar Arons Kristjánssonar í KIF Kolding eru á toppnum með 33 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert