Enn einn markaleikur Bjarka

Bjarki Már Elísson skoraði 10 mörk í dag.
Bjarki Már Elísson skoraði 10 mörk í dag. mbl.is/Ómar

Bjarki Már Elísson hélt uppteknum hætti í dag og skoraði tíu mörk fyrir Eisenach þegar liðið vann góðan útisigur á Nordhorn, 29:23, í þýsku B-deildinni í handknattleik. Hannes Jón Jónsson bætti við tveimur mörkum fyrir Eisenach.

Bjarki hefur verið í miklum ham undanfarnar vikur með Eisenach, sem um leið hefur klifið töfluna hægt og bítandi. Eftir þennan sigur er liðið komið í sjötta sætið með 27 stig, sex stigum á eftir þremur efstu liðunum, Leipzig, Bittenfeld og Rimpar.

Hörður Fannar Sigþórsson skoraði tvö mörk og Sigtryggur Rúnarsson eitt fyrir Aue, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar sem tapaði á heimavelli fyrir Bittenfeld, 22:24, eftir æsispennandi lokamínútur. Aue er í 10. sæti af 20 liðum í deildinni með 22 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert