Herjólfur býður Eyjamönnum í fyrramálið

Eyjamenn eiga einhverja albestu stuðningsmenn landsins, ef ekki þá bestu.
Eyjamenn eiga einhverja albestu stuðningsmenn landsins, ef ekki þá bestu. mbl.is/Kristinn

ÍBV fékk hreinlega stórkostlegan stuðning í Laugardalshöllinni í kvöld þegar liðið sló Hauka út í undanúrslitum Coca Cola-bikars karla í handknattleik þrátt fyrir að hafa lent 18:12 undir í seinni hálfleik.

Eyjamenn verða enn fjölmennari og sjálfsagt enn háværari í stúkunni á morgun kl. 16 þegar úrslitaleikurinn við FH hefst.

Eimskip hafa ákveðið að bjóða Eyjamönnum fría ferð frá Eyjum kl. 8 í fyrramálið svo að sem flestir geti komist á úrslitaleikinn. Í fréttatilkynningu þess efnis er sá síðasti um borð vinsamlegast beðinn um að slökkva ljósin í bænum!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert