„Við vorum mjög langt niðri“

„Við vorum mjög langt niðri þessa helgina en um leið og mánudagur kom þá hófst undirbúningur fyrir þennan leik,“ sagði Geir Guðmundsson, örvhenta skyttan öfluga, í liði Vals þegar mbl.is ræddi við hann eftir sigurleikinn gegn ÍBV á Hlíðarenda í kvöld. 

Valur sigraði 25:18 og er á toppnum í Olís-deildinni. Geir skoraði 7 mörk í fyrri hálfleik í kvöld og raðaði einnig inn mörkunum í undanúrslitunum gegn FH fyrir viku síðan. Geir vildi þó ekki kannast við að vera með byssuleyfi hjá Óskari Bjarna þjálfara en sagðist ánægður með að skotin hefðu ratað rétta leið í síðustu leikjum.

Geir Guðmundsson sækir að marki ÍBV á Hlíðarenda í kvöld.
Geir Guðmundsson sækir að marki ÍBV á Hlíðarenda í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert