Grótta upp í efstu deild

Viggó Kristjánsson skoraði 9 mörk fyrir Gróttu.
Viggó Kristjánsson skoraði 9 mörk fyrir Gróttu. mbl.is/Golli

Grótta tryggði sér í kvöld efsta sætið í 1. deild karla í handknattleik og þar með sæti í Olís-deildinni næsta vetur. 

Grótta hélt á Selfoss og vann þar Míluna 29:22 eftir að hafa verið 13:11 yfir að loknum fyrri hálfleik. 

Örn Þrastarson skoraði 12 mörk fyrir heimaliðið en Viggó Kristjánsson gerði 9 fyrir Gróttu. 

Þá vann Víkingur lið Selfyssinga, 27:24, en Selfoss var einu marki yfir í hálfleik, 12:11. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert