Þórey skoraði þrettán gegn botnliðinu

Þórey Rósa Stefánsdóttir átti stórleik í dag.
Þórey Rósa Stefánsdóttir átti stórleik í dag. mbl.is/Ómar

Þórey Rósa Stefánsdóttir átti stjörnuleik fyrir Vipers Kristiansand þegar liðið vann öruggan útisigur á botnliði Stabæk, 41:22, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Þórey Rósa var markahæst á vellinum og skoraði alls þrettán marka Vipers í leiknum, en liðið er í sjöunda sæti deildarinnar með nítján stig og siglir þar lygnan sjó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert