Bjarki Már Elísson markahæsti leikmaður þýsku B-deildarinnar í handknattleik skoraði 6 mörk þegar lið hans, Eisenach, hafði betur gegn Emsdetten á útivelli í kvöld, 32:31.
Hannes Jón Jónsson náði ekki að skora fyrir Eisenach en hjá Emsdetten var Oddur Gretarsson markahæstur með 7 mörk og þeir Anton Rúnarsson og Ernir Hrafn Arnarsson skoruðu eitt mark hver en Ólafur Bjarki Ragnarsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.
Eisenach er í öðru sæti deildarinnar en Emsdetten er í 11. sætinu.