Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk fyrir Guif Eskilstuna í stóru tapi liðsins gegn Alingsås í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn en lokatölur urðu 30:21.
Leikurinn er sá fyrsti í einvígi liðanna en vinna þarf þrjá leik til þess að komast í úrslitaleikinn.
Aron Rafn Eðvarsson landsliðsmarkvörður lék með Guif í dag en Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Alingsås var sex mörkum yfir í hálfleik 17:11 og komst meðal annars í 6:0. Guif náði að minnka muninn í 12:9 en ekki lengra.
Staðan er því 1:0 í einvíginu.