Útisigur hjá Gunnari Steini

Gunnar Steinn Jónsson
Gunnar Steinn Jónsson mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Gunnar Steinn Jónsson og samherjar hans í Gummersbach unnu eins marks útisigur 30:29 á Wetzlar í efstu deild þýska handboltans í kvöld.

Gunnar Steinn skoraði 1 mark fyrir Gummersbach í leiknum sem siglir hinn umtalaða lygna sjó í 10. sæti.

Í næstu deild fyrir neðan vann Íslendingaliðið Aue lið Neuhausen 35:23 á heimavelli.

Þar skoruðu frændurnir Árni Þór Sigtryggsson og Sigtryggur Rúnarsson fimm mörk hvor. Hörður Fannar Sigþórsson gerði auk þess þrjú mörk og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson eitt. 

Aue er í 9. sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert