Dagur hafði betur á móti Geir

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. mbl.is/Golli

Dagur Sigurðsson hafði betur gegn Geir Sveinssyni þegar lið þeirra leiddu saman hesta sína í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Lærisveinar Dags í Füchse Berlin fögnuðu sigri gegn Magdeburg, 32:27, eftir að staðan hafði verið, 16:14, í hálfleik. Petar Nenadic var markahæstur í Berlínarliðinu með 9 mörk en hjá Magdeburg var Tomasz Gebala með 8 mörk.

Mageburg er í fjórða sætinu með 48 stig en Füchse Berlin er með 37 stig í sjötta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert