Björn Ingi heldur tryggð við Stjörnuna

Björn Ingi Friðþjófsson.
Björn Ingi Friðþjófsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björn Ingi Friðþjófsson, markvörður Stjörnunnar í handknattleik, hefur framlengt samning sinn til tveggja ára.  „Með þessu er Stjarnan að tryggja markvarðastöðuna með reynslumiklum og traustum leikmanni,“ segir í tilkynningu frá félaginu sem féll úr Olís-deildinni í vor.

Einnig hefur Guðmundur Guðmundsson gengið til liðs við félagið eftir stutta veru í Noregi.  Guðmundur samdi við Stjörnuna til tveggja ára eins og Björn Ingim en hann er að góðu kunnur í herbúðum Stjönunnar og hefur spilað allan sinn feril hjá Stjörnunni utan veruna í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert