Alexander með fimm í toppslag

Alexander Petersson skoraði fimm gegn Kiel.
Alexander Petersson skoraði fimm gegn Kiel. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn Kiel í toppslag í þýsku 1. deildinni i handknattleik í dag en leiknum lauk með 24:20 sigri Löwen.

Alexander Petersson var atkvæðamikill í liði Löwen í dag en hann gerði fimm mörk fyrir liðið.

Staðan í hálfleik var 13:7 fyrir Löwen en liðið hélt forystunni út leikinn. Uwe Gensheimer var atkvæðamestur í liði Löwen með 7 mörk á meðan Johan Canellas var með 5 mörk fyrir Kiel.

Löwen er eftir leikinn í efsta sæti deildairnnar með 18 stig en Kiel í því þriðja með 12 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert