Bjarki Már jafnaði undir lokin

Bjarki Már Elísson var hetja Fücshe í kvöld en hann …
Bjarki Már Elísson var hetja Fücshe í kvöld en hann gerði fjögur mörk í leiknum. Twitter

Füchse Berlin og Magdeburg gerðu 24:24 jafntefli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld en Bjarki Már Elísson reyndist hetja Berlínarliðsins með því að ná í stig undir blálokin.

Geir Sveinsson þjálfar lið Magdeburg á meðan Erlingur Richardsson er við stjórnvölin hjá Füchse Berlin en Bjarki Már Elísson leikur þá með Berlínarliðinu.

Staðan í hálfleik var 15:9 Magdeburg í vil en Füchse sótti í sig veðrið í þeim síðari og reyndist Bjarki hetja liðsins. Hann jafnaði leikinn í 24:24 þegar fjórar sekúndur voru eftir og lokatölur því 24:24.

Bjarki gerði fjögur mörk í leiknum en liðið er nú með 12 stig í 3. sæti á meðan Magdeburg er í 9. sæti með 9 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert