Stjarnan vann toppslaginn

Starri Friðriksson skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna í kvöld.
Starri Friðriksson skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Stjarnan sigraði Fjölni, 26:20, í uppgjöri efstu liða 1. deildar karla í handknattleik sem fram fór í Dalhúsum í Grafarvogi í kvöld.

Stjarnan náði þar með fjögurra  stiga forskoti, er með 18 stig en Fjölnir og Selfoss eru með 14 stig hvort. Selfyssingar mæta Þrótti annað kvöld og geta saxað aftur á Garðbæingana. Þróttarar eru með 10 stig í fjórða sætinu.

Mörk Fjölnis: Björgvin Páll Rúnarsson 6, Sveinn Þorgeirsson 4, Brynjar Loftsson 4, Kristján Örn Kristjánsson 2, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 2, Ingvar K. Guðmundsson 1, Sveinn Jóhannsson 1.

Mörk Stjörnunnar: Starri Friðriksson 8, Ari Pétursson 4, Sverrir Eyjólfsson 4, Andri Hjartar Grétarsson 4, Hörður Kristinn Örvarsson 2, Eyþór Már Magnússon 2, Guðmundur Sigurður Guðmundsson 1, Finnur Jónsson 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert