Jóhann Gunnar með og Víkingur úr leik

Jóhann Gunnar Einarsson lék með Aftureldingu í kvöld og lét …
Jóhann Gunnar Einarsson lék með Aftureldingu í kvöld og lét til sín taka. mbl.is/Kristinn

Örvhenta skyttan Jóhann Gunnar Einarsson sneri aftur með Aftureldingu í kvöld, eftir að hafa verið frá keppni síðan í vor vegna meiðsla, þegar liðið sló Víking út í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta.

Afturelding var einu marki yfir í hálfleik, 15:14, en skellti svo í lás í seinni hálfleik. Víkingar skoruðu aðeins tvö mörk á 25 mínútum í seinni hálfleiknum, og lentu 22:16 undir, en lokatölur urðu 22:20.

Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 6 mörk og Jóhann Jóhannsson skoraði fjögur. Jóhann Gunnar skoraði eitt í endurkomunni. Hjá Víkingum var Jóhann Reynir Gunnlaugsson markahæstur með 5 mörk og Ægir Hrafn Jónsson skoraði fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert