„Vorum einbeittar allt til loka“

Sigurbjörg Jóhannsdóttir tekur hraustlega á móti Patriciu Szölösi í Árbænum …
Sigurbjörg Jóhannsdóttir tekur hraustlega á móti Patriciu Szölösi í Árbænum í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Patricia Szölösi skoraði 7 mörk fyrir Fylki þegar liðið sló Fram út úr 8-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í handbolta í kvöld. Szölösi var í skýjunum þegar mbl.is spjallaði við hana. 

„Við vorum einbeittar allt til loka leiksins í þetta skiptið sem var afar mikilvægt. Þjálfararnir höfðu hamrað á því að við þyrftum að halda einbeitingu í 60 mínútur og okkur tókst það. Við unnum vel saman sem lið og stóðum vörnina mjög vel. Baráttan og samvinnan var til staðar,“ sagði Szölösi við mbl.is í kvöld en einnig er rætt við hana í Morgunblaðinu í fyrramálið. 

Vörn Fylkis var öflug í kvöld að mati Szölösi.
Vörn Fylkis var öflug í kvöld að mati Szölösi. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert