Sigurbergur og Egill drjúgir

Sigurbergur Sveinsson skoraði þrjú mörk í kvöld.
Sigurbergur Sveinsson skoraði þrjú mörk í kvöld. mbl.is/Golli

Danska liðið Tvis Holstebro með Sigurberg Sveinsson og Egil Magnússon innanborðs sigraði þýska liðið Göppingen, 34:31, í EHF-bikarnum í handknattleik í kvöld.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var jöfn, 17:17 en heimamenn voru sterkari í síðari hálfleik og sigruðu að lokum með þriggja marka mun.

Sigurbergur skoraði þrjú mörk fyrir Tvis Holstebro í kvöld og Egill tvö. 

Þetta var fyrsti leikur liðanna í riðlakeppni en 16 lið leika í fjórum fjögurra liða riðlum. Tvö efstu liðin úr hverjum riðli komast í 8-liða úrslit en þau eru leikin með útsláttarfyrirkomulagi, heima og að heiman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert