Arna og Karen úr leik

Arna Sif Pálsdóttir skoraði 3 mörk í kvöld.
Arna Sif Pálsdóttir skoraði 3 mörk í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Illa fór hjá Nice, liði Örnu Sifjar Pálsdóttir og Karen Knútsdóttur, í undanúrslitum í franska handboltanum í kvöld. Nice tapaði síðari leiknum gegn Metz 28:20 og útivelli og er úr leik 49:41 samtals en Metz leikur til úrslita um titilinn. 

Arna skoraði 3 mörk í 4 skotum en hún lék í 31 mínútu. Karen skoraði 2 mörk á þeim 36 mínútum sem hún var inn á en skotnýting Karenar var ekki góð í kvöld en hún átti 8 skottilraunir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert