Arnór úr leik í EHF-bikarnum

Arnór Atlason í leik með Saint-Raphaël gegn Haukum í EHF-bikarnum …
Arnór Atlason í leik með Saint-Raphaël gegn Haukum í EHF-bikarnum fyrr í vetur. mbl.is/Golli

Arnór Atlason féll í kvöld naumlega úr leik í 8-liða liða úrslitum EHF-bikarsins í handbolta þegar lið hans St. Raphael tapaði fyrir Chambery á útivelli 29:22 og samtals 54:52. 

Chambery verður því í undanúrslitum keppninnar en St. Raphael er úr leik þrátt fyrir fimm marka sigur í fyrri leiknum. 

Arnór skoraði 3 mörk í 7 skotum fyrir St. Raphael. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert