Karen með 8 en Nice í fjórða sæti

Karen Knútsdóttir skoraði 8 mörk í kvöld.
Karen Knútsdóttir skoraði 8 mörk í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Nice, lið Karenar Knútsdóttur og Örnu Sifjar Pálsdóttur, hafnaði í fjórða sæti í efstu deild franska handboltans en liðið lauk keppni í kvöld. 

Nice lék seinni leikinn um bronsið við Issy Paris og tapaði á útivelli, 25:20, en Nice hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli, 25:24.

Karen átti stórleik og var langmarkahæst hjá Nice með 8 mörk úr 13 skotum en hún lék í 51 mínútu, mest allra. Arna Sif skoraði 2 mörk en hún lék í 42 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert