Svavar og Arnar í Meistaradeildina

Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson.
Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson. Ljósmynd/hsi.is

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Arnar Sigurjónsson munu dæma leik í Meistaradeild Evrópu um helgina.

Um er að ræða leik Nantes frá Frakklandi og Besiktas frá Tyrklandi, í D-riðli Meistaradeildar karla. Það er vefsíðan Fimmeinn.is sem greinir frá þessu.

Arnar og Svavar hafa áður dæmt í Meistaradeildinni, árið 2013, bæði í karla- og kvennaflokki.

Ólympíufararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma einnig í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en þeir dæmdu leik Flensburg og Veszprém um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert