Ólafur ekki með næstu vikurnar

Ólafur Gústafsson.
Ólafur Gústafsson. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafur Gústafsson leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla í handknattleik verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu Garðabæjarliðsins á dögunum.

Ólafur segir í samtali við vefinn fimmeinn.is að myndataka sem hann fór í hafi leitt í ljós að liðbönd í ökkla hafi skaddast en ekki slitnað og hann reiknar með því að hann snúi aftur inn á völlinn eftir fimm til sex vikur.

Ólafur gekk í raðir Stjörnunnar í sumar og gerði tveggja ára samning en hann hefur undanfarin ár verið í atvinnumennsku í Danmörku og Þýskalandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert