Flottur leikur hjá Sigvalda

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 7 mörk í dag.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 7 mörk í dag. mbl.is

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 7 mörk og var markahæstur í liði Århus þegar liðið lagði Kolding á útivelli, 27:21, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Ómar Ingi Magnússon skoraði 4 mörk fyrir Árósarliði og Róbert Gunnarsson 1.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 6 mörk fyrir Aalborg og Arnór Atlason 2 þegar liðið bar sigurorð af Midtjylland, 29:27.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert