Löwen lagði Evrópumeistarana

Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson.
Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson. mbl.is

Þýska meistaraliðið Rhein-Neckar Löwen sem þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson leika með vann í kvöld góðan sigur á Evrópumeisturum Kielce á útivelli í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handknattleik.

Löwen fagnaði öruggum sigri, 34:26, eftir að hafa verið einu marki yfir í leikhléi, 16:15.

Guðjón Valur náði ekki að skora fyrir Löwen en Alexander skoraði 2 mörk. Kielce og Vardar eru í toppsætunum í B-riðlinum með 8 stig en Löwen fylgir fast á eftir með 7 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert