Selfoss sló Eyjamenn út í framlengingu

Selfyssingar eru komnir áfram í bikarnum.
Selfyssingar eru komnir áfram í bikarnum. mbl.is/Ofeigur Lydsson

HK, Fram og Selfoss tryggðu sér í dag sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik eftir mikla spennuleiki.

HK vann Hvíta Riddarann í Mosfellsbæ, 28:27, eftir að staðan hafi verið 12:12 í hálfleik. Spennan var líka mikil í leik Fjölnis og Fram. Fjölnir var yfir í hálfleik, 14:13, en Fram fór að lokum með sigur af hólmi 28:27.

Það var úrvalsdeildarslagur þegar Selfoss og ÍBV mættust á Selfossi. ÍBV var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13, en þegar venjulegum leiktíma var lokið var staðan jöfn 28:28. Það þurfti því að framlengja og að henni lokinni fögnuðu Selfyssingar sigri, 33:32.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert