Valur og Fram áfram í bikarnum

Óskar Bjarni Óskarsson annar þjálfara Valsmanna.
Óskar Bjarni Óskarsson annar þjálfara Valsmanna. mbl.is/Styrmir Kári

Bikarmeistarar Vals í handknattleik karla áttu ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum í bikarkeppninni í dag.

Valur hafði betur á móti Akureyri U, 26:17. Josep Grgic skoraði 6 mörk fyrir Val, Alexander Örn Júlíusson 5 og Ýmir Már Gíslason skoraði 4. Hjá Akureyrarliðinu var Dagur Gautason markahæstur með 6 mörk og Arin Tjörvi Gunnlaugsson skoraði 4.

Þá vann Fram öruggan sigur á Fjölni 2 í Grafarvogi, 28:18. Bjarni Ólafsson var markahæstur í liði Fjölnis með 5 mörk og Arnþór Örvar Ægisson skoraði 4. Hjá Fram var Þorgeir Bjarki Davíðsson markahæstur með 6 mörk og þeir Ragnar Þór Kjartansson, Guðjón Andri Jónsson og Lúðvík Thorberg Arnkelsson skoruðu 4 mörk hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert