Ótrúlegt sigurmark (myndskeið)

Allison Pineau fagnar mögnuðu sigurmarki sínu.
Allison Pineau fagnar mögnuðu sigurmarki sínu. AFP

Þau gerast vart ótrúlegri sigurmörkin en í leik Frakka og Spánverja í lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik þegar Frakkar unnu magnaðan sigur, 23:22.

Sjá frétt mbl.is: Ótrúlegar lokasekúndur í sigri Frakka

Spánverjar voru yfir, 22:21, þegar komið var fram á lokamínútuna. Allison Pineu jafnaði metin fyrir Frakka á vítalínunni þegar átján sekúndur voru eftir.

Sigurmarkið kom svo á lokasekúndunni með skoti þvert yfir völlinn þar sem Spánverjar freistuðu þess að uppskera sín fyrstu stig í milliriðlinum. Hreint ótrúlegt mark sem sjá má hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert