Bjarki með fimm mörk í sigri

Bjarki Már Elísson átti góðan leik í dag.
Bjarki Már Elísson átti góðan leik í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarki Már Elísson átti góðan leik fyrir Füchse Berlín í EHF-bikarnum í handknattleik í dag. Hann skoraði fimm mörk fyrir þýska liðið sem vann franska félagið Saint Raphael, 33:31.

Füchse Berlín hefur leikið tvo leiki í kepninni og unnið þá báða. Berlín og danska félagið GOG eru saman á toppi riðilsins með fjögur stig úr tveim leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert