Ólafur skoraði tíu í Íslendingaslag

Ólafur Guðmundsson skoraði tíu í dag.
Ólafur Guðmundsson skoraði tíu í dag. AFP

Rhein Neckar Löwen hafði betur gegn Kristianstad í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag, 31:29. Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Löwen. 

Ólafur Andrés Guðmundsson átti stórleik hjá Kristianstad og skoraði tíu mörk en það dugði skammt. Arnar Freyr Arnarsson og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu svo eitt mark hvor. 

Löwen er í 3. sæti riðilsins með 15 stig og Kristianstad er í 6. sæti með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert