Öruggt hjá lærisveinum Alfreðs

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Ljósmynd/JONAS GUETTLER

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel áttu ekki í miklum vandræðum með Wetzlar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. 

Kiel vann leikinn 34:25 eftir að hafa verið með 17:13 forystu í hálfleik og var aldrei spurning hvort liðið myndi vinna leikinn. 

Niklas Ekberg skoraði sjö mörk fyrir Kiel og Christian Zeitz var með sex. Kiel er í 3. sæti deildarinnar, þrem stigum á eftir toppliði Flensburg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert