Seltirningurinn Viggó Kristjánsson er í liði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik hjá Tophaandbold.dk eftir stórleik sinn þegar Randers skellti Århus Håndbold í gærkvöldi, 30:23.
Viggó skoraði hvorki fleiri né færri en 12 mörk fyrir Randers í leiknum, en liðið er á botni deildarinnar með 8 stig eftir 19 leiki.
Rundens hold 19. Spillerunde #888ligaen #herreligaen #rundenshold #tophåndbold pic.twitter.com/sQwImIFGRl
— Tophaandbold.dk (@tophaandbold) February 21, 2017