Hildur í nýju hlutverki hjá Fylki

Hildur Björnsdóttir, til vinstri.
Hildur Björnsdóttir, til vinstri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hildur Björnsdóttir mun vera aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fylkis í handknattleik það sem eftir er af tímabilinu. Þetta kemur fram á fimmeinn.is.

Jóhannes Lange tók við liði Fylkis í síðasta mánuði eftir að Haraldi Þorvarðarsyni var sagt upp störfum. Honum til aðstoðar var Ómar Örn Jónsson, sem tók það tímabundið að sér. Hildur er leikmaður Fylkis, en verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla eftir að hafa handarbrotnað á dögunum.

Fylkir er í neðsta sæti Olís-deildar kvenna með 6 stig eftir 16 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert