Frumsýndu framliggjandi vörn

Stefán Arnarson kom mörgum á óvart og beitti framliggjandi vörn í upphafi undanúrslitaleiksins gegn Haukum í Coca Cola-bikarnum í kvöld. Fram sigraði 28:21 og mætir Stjörnunni í úrslitum á laugardag. 

„Við höfum æft hana síðan dregið var í bikarnum og frumsýndum hana í dag,“ sagði Stefán spurður um vörnina en Fram spilaði einnig 6-0 vörn síðar í leiknum. 

„Varnarleikur okkar var frábær fyrstu sautján mínútur fyrri hálfleiks og þá náðum við að skapa fimm, sex marka forskot. Sóknarleikurinn var mjög góður þá,“ sagði Stefán meðal annars við mbl.is í kvöld en viðtalið við hann í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

Stefán Arnarson, þjálfari Fram.
Stefán Arnarson, þjálfari Fram. mbl.is/Árni Sæberg
Guðrún Ósk, Sigurbjörg og Rebekka fagna marki í Laugardalshöll í …
Guðrún Ósk, Sigurbjörg og Rebekka fagna marki í Laugardalshöll í kvöld. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert