Hafdís Shizuka Iura kom fersk inn á af varamannabekknum hjá Fram og skoraði fjögur mörk á lokakaflanum þegar Fram tryggði sér sæti í úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta með sigri á Haukum 28:21 í kvöld.
„Ég ákvað bara að gera mitt besta og koma pressulaus inn í þetta. Kannski skiptir það máli,“ sagði Hafdís hógvær þegar mbl.is spurði hana út í hennar frammistöðu í kvöld en Hafdís fagnaði 23 ára afmæli sínu í dag.
„Við héldum út allan leikinn á meðan það byrjaði að hægja aðeins á þeim á síðustu tíu til fimmtán mínútunum,“ sagði Hafdís meðal annars um leikinn en viðtalið við hana í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði.