Bjarki og félagar á toppinn

Bjarki Már Elísson fagnar marki á HM.
Bjarki Már Elísson fagnar marki á HM. AFP

Bjarki Már Elísson og lið hans Füchse Berlín komst á toppinn í A-riðli EHF-bikarsins í handknattleik eftir sigur á GOG frá Danmörku, 37:29, í toppslag í kvöld.

Füchse var fimm mörkum yfir í hálfleik, 17:12, og lét kné fylgja kviði eftir hlé og uppskar að lokum átta marka sigur, 37:29.

Bjarki skoraði eitt mark í leiknum fyrir Füchse, sem er með fullt hús stiga á toppnum eftir þrjá leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert