Sveinn Aron kominn í leikbann

Sveinn Aron Sveinsson.
Sveinn Aron Sveinsson. mbl.is/Golli

Sveinn Aron Sveinsson hornamaður Valsmanna í handknattleik tekur út leikbann þegar Valur tekur á móti ÍBV í lokaumferð Olís-deildarinnar á þriðjudaginn.

Sveinn Aron var í vikunni úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ en hann sýndi af sér grófa óíþróttamannslega framkomu gagnvart eftirlitsmanni eftir leik Vals og Gróttu í síðustu viku.

Þá var Sóley Ívarsdóttir leikmaður HK úrskurðuð í eins leiks bann en hún fékk útilokun með skýrslu í leik HK og Fjölnis um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert