Róbert Aron framlengir við Eyjamenn

Róbert Aron Hostert í leik með ÍBV í úrslitakeppninni gegn …
Róbert Aron Hostert í leik með ÍBV í úrslitakeppninni gegn Val á dögunum. mbl.is/Árni Sæberg

Róbert Aron Hostert hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild ÍBV og spilar samkvæmt því áfram með Eyjamönnum næstu tvö árin. Þetta kemur fram á eyjar.net.

Róbert Aron sneri aftur til ÍBV fyrir tímabilið, en hann spilaði síðast með liðinu fyrir þremur árum og fagnaði þá Íslandsmeistaratitli. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins það tímabil og fór í kjölfarið til Danmerkur þar sem hann lék með Mors-Thy þangað til síðasta sumar.

Róbert Aron skoraði meðal annars 13 mörk í leikjunum þremur hjá ÍBV í átta liða úrslitunum gegn Val, þar sem Eyjamenn féllu úr leik að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert