KA/Þór í úrslit umspilsins

Harður slagur í KA-heimilinu í kvöld.
Harður slagur í KA-heimilinu í kvöld. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

KA/Þór sigraði FH, 24:21, í oddaleik liðanna í undanúrslitum umspilsins í 1. deild kvenna í handknattleik í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld.

Þar með verður það Akureyrarliðið sem mætir Selfyssingum í einvígi um úrvalsdeildarsætið en Selfoss, sem endaði í sjöunda og næstneðsta sæti Olísdeildar karla, vann HK 2:0 í hinu
einvígi umspilsins.

Martha Hermannsdóttir skoraði 9 mörk fyrir KA/Þór í kvöld og Katrín Vilhjálmsdóttir 5. Fanney Þóra Þórsdóttir og Ingibjörg Pálmadóttir voru atkvæðamestar hjá FH með 5 mörk hvor.

Fyrsti leikur Selfoss og KA/Þórs fer fram á Selfossi á sunnudaginn kemur en þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert