Lokahóf Handknattleikssambands Íslands fór fram að Gullhömrum í Reykjavík í kvöld og þar var veittur fjöldi viðurkenninga eins og sagt var frá á mbl.is.
Theodór og Steinunn valin þau bestu.
Ófeigur Lýðsson ljósmyndari mbl.is var í Gullhömrum og tók meðfylgjandi myndir af sigurvegurum kvöldsins.
Orri Freyr Gíslason úr Val fékk Valdimarsbikarinn og Steinunn Björnsdóttir úr Fram fékk Sigríðarbikarinn.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður úr Fram, efnilegasti leikmaður Olís-deildar karla.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Sandra Erlingsdóttir úr ÍBV, efnilegasti leikmaður Olís-deildar kvenna.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Guðmundur Helgi Pálsson úr Fram, þjálfari ársins í Olís-deild karla.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Stefán Arnarson úr Fram, þjálfari ársins í Olís-deild kvenna.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Heimir Örn Árnason, annar dómara ársins.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Martha Hermannsdóttir úr KA/Þór, besti leikmaður 1. deildar kvenna.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Jón Kristinn Björgvinsson úr ÍR, besti leikmaður 1. deildar karla.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Viktor Hólm Jónmundsson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV, t.v., tók við viðurkenningu Theodórs Sigurbjörnssonar, sem besti leikmaður Olís-deildar karla, og Steinunn Björnsdóttir, Fram, besti leikmaður Olís-deildar kvenna, besti varnarmaður deildarinnar og mikilvægasti leikmaður deildarinnar að mati þjálfara.
mbl.is/Ófeigur Lýðsson