Handknattleikskonan Þuríður Guðjónsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Selfoss og þar af leiðandi skrifað undir tveggja ára samning við félagið sem leikur í efstu deild á næsta keppnistímabili.
Þuríður þekkir vel til í herbúðum Selfoss-liðsins sem hún lék með um skeið. Síðustu tvö árin hefur Þuríður leikið með Fylki sem féll úr úrvalsdeildinni í vor. Hún skoraði 44 mörk í 20 leikjum með Fylki í Olís-deildinni á síðustu leiktíð.