Frábær byrjun hjá Færeyingum á HM

Frá viðureign Færeyinga og S-Kóreumanna í kvöld.
Frá viðureign Færeyinga og S-Kóreumanna í kvöld. Ljósmynd/IHF

Færeyingar hafa byrjað með glæsibrag á heimsmeistaramótinu í handknattleik skipað leikmönnum 21 árs og yngri sem fram fer í Alsír.

Færeyingar höfðu í kvöld betur gegn Suður-Kóreumönnum, 28:27, og hafa þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu eins og Íslendingar. í fyrsta leiknum báru Færeyingar sigurorð af Kínverjum.

Íslendingar verða í eldlínunni á morgun en þá etja þeir kappi við gestgjafana frá Alsír og er reiknað með mikilli stemningu á leiknum og að höllin verði troðfull en hún tekur 8.500 manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert